Alvarlega sorglegt að vita til þess að forstjóri Toyota, og stjórnarformaður Icelandair, geti hent EITT HUNDRAÐ MILLJÓNUM KRÓNA í hlutafjárkaup á sama tíma og nokkur hundruð manns valsa um götur höfuborgar Íslands án þess að eiga fyrir mat eða hafa þak yfir höfuðið.

Forstjóri Toyota og stjórnarformaður Icelandair, hefur ítrekað kvartað sáran yfir háum sköttum á Íslandi. En karlinn á samt hundrað milljónir króna undir koddanum til að kaupa ódýr bréf í eigin fyrirtæki…
Hvernig tengist það kann einhver að spyrja? Jú, Icelandair er á lífi þökk sé lífeyrissjóðum landsmanna og þar með töldum því ógæfusama fólki sem misst hefur allt sitt og stikar göturnar. Það fólk hefur líka á einhverjum tímapunkti greitt til lífeyrissjóðanna eins og lög gera ráð fyrir.
Aldeilis fín ástæða fyrir vitiborið fólk og skynsamt að sleppa því alfarið að kaupa bíl af Toyota á næstunni. Því ef forstjórinn á 100 millur á bók til að eyða í vitleysu má slá föstu að álagningin á Toyota-bifreiðar er langt umfram það sem eðlilegt getur talist.
En stjórnarformaðurinn fjarri því sá eini sem eyðir nú milljónum króna í hlutabréf Icelandair. Það hafa nánast allir yfirmenn og stjórnendur fyrirtækisins gert síðustu sólarhringana. Hvað veldur? Samantekin ráð? Var niðursveifla bréfa kannski ráðgerð?

Hlutabréfagengi Icelandair síðustu misserin.
Þó fyrirtækjasamsteypan sem kallast Icelandair sé ekki á horriminni fjárhagslega séð þá hafa fjárfestar litlar sem engar væntingar til fyrirtækisins. Þess vegna hafa bréf í flugfélaginu hrapað eins og óskastjarna með njálg undanfarin misseri.
Og ekki virðist vellaunaður stjórnarformaðurinn hafa neitt sérstakt fjárhagsvit umfram Ólaf Ólafsson, skítablesa og svindlara. Stjórnarformaðurinn keypti sín bréf á genginu 8.17 en við lok dags í dag var meðalgengi bréfa Icelandair 7.99. Sjéffinn því tapað allnokkrum þúsund köllum á einum einasta sólarhring.
Þökk sé Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, er fjármálaeftirlitið hérlendis veikara en ebólusjúklingar í Kongó. Ekki er fráleitt að ætla að einhverjar eftirlitsstofnanir erlendis myndu setja spurningarmerki við að stjórnarmenn og yfirmenn risafyrirtækis á markaði eyddu öllu sínu í eigin bréf á rétt rúmum sólarhring. Ekki þarf reiknigetu til að vita að það eru samantekin ráð.
Stóra spurningin er þessi: hvað vita forsvarsmenn Icelandair sem við vitum ekki? Þetta lið er ekki að kaupa bréf á botnverði til að horfa á fjárfestingu sína standa í stað eða lækka. Við hljótum öll að geta verið sammála um það.
Er einhver stór tilkynning væntanleg frá Icelandir um bættan hag og betri rekstur? Vann Icelandair í Eurojackpot lottóinu? Er megamikil aukning í farþegafjölda á þriðja ársfjórðungi sem mun áreiðanlega hækka bréfin?
Ómögulegt að segja. En miðað við gjörðir forstjórans og stjórnarformannsins skal öll ritstjórn Fararheill éta hatt sinn og staf ef þetta fólk veit ekki meira en vitað er opinberlega…
Guð blessi Ísland!







