Eins og lesendum okkar er kunnugt um finnum við í 99 prósent tilvika töluvert ódýrari flug, ferðir, siglingar og afþreyingu en innlendar ferðaskrifstofur bjóða okkur upp á í litríkum bæklingum sínum. En 99% þýðir að stöku sinnum bjóða þessar innlenda kostakjör sem ekki finnast gegnum netið.

Vikutúr með þessum dalli plús nokkrir dagar í Flórída um jól og áramót í boði á kostakjörum hjá Norrænu ferðaskrifstofunni.

Besta breska tilboðið sem við finnum á sömu ferð og Norræna ferðskrifstofan auglýsir.
Reyndar furðulegt að íslensku ferðaskrifstofunar séu ekki löngu farnar að skipuleggja sínar eigin ferðir í stað þess að kaupa gistingu af erlendum ferðaheildsölum, fá skítatilboð frá Icelandair í flugið og vona það besta. Það kostar vissulega meiri tíma og peninga að gera og græja sitt á eigin spýtur en hver setur það fyrir sig þegar ferðaskrifstofa er að reyna að koma undir sig fótunum. Þá gera eigendur og starfsmenn það sem til þarf til að freista ferðalanga. Sem er góð ástæða til að skoða vandlega öll tilboð nýrra ferðaskrifstofa hverju sinni. Þær oftar en ekki að bjóða töluvert betur en þessar gömlu.
Alls ágætt dæmi um ferð plús siglingu sem við hér finnum engar leiðir til að toppa er jólaferð Norrænu ferðaskrifstofunnar þann 20. desember til 3. janúar. Þar um að ræða flug til Flórída, gistingu þar í sex nætur, vikulanga siglingu um Karíbahaf og flug heim aftur að siglingu lokinni. Slíkur túr fjarri því gefins því kostnaður per mann miðað við tvo saman er að lágmarki 390 þúsund krónur í innriklefa og 425 þúsund krónur í ytriklefa með svölum. Sem sagt 780 þúsund krónur fyrir par í innriklefa og 850 þúsund krónur fyrir parið í klefa með svölum.
Þetta ekki spennandi túr á neinum mælikvarða. Flórída er alltaf Flórída og í sex nætur fyrir siglingu og eftir er gist á Florida Mall Hótelinu. Sem eðli máls samkvæmt er ofan á Florida Mall verslunarmiðstöðinni.
Vart til meira óspennandi gistimöguleiki á Flórídaskaganum eins og hann leggur sig nema gista á gerilsneyddu hóteli í verslunarmiðstöð ef þú spyrð okkur. En það sjálfsagt heillar suma sem vilja birgja sig upp af nýjum fötum og dúlleríi án þess að hafa meira fyrir en ýta á lyftuhnapp. Enginn fækkar kílóunum á slíku hóteli og eins og rannsóknir sýna þá fjölgar kílóunum á siglingum. Kannski ráð fyrir Norrænu ferðaskrifstofuna að bjóða hótel þar sem þú þarft raunverulega að fara út úr hótelinu til að komast í verslanir eða afþreyingu. Offita er jú vaxandi vandamál meðal Íslendinga.
Að þessu sögðu þá skal viðurkennast að tilboð Norrænu ferðaskrifstofunnar á þessari ferð er svona nokkuð á pari við það sem aðrar evrópskar ferðaskrifstofur bjóða best í sama túrinn. Bretum gefst kostur á þessari siglingu niður í 320 þúsund á kjaft í innriklefa samkvæmt leit okkar á vefnum en í því tilviki er aðeins um tveggja nátta dvöl að ræða. Eina nótt fyrir siglingu og eina eftir siglingu. Norræna býður fjórar nætur að auki ofan á það.
Ekki svo að skilja að eðlilegt sé að skitnar fjórar nætur á verslunarmiðstöðvarhóteli í Orlandó kosti par eða hjón 140 þúsund krónur umfram Breta. Svo er alls ekki. En miðað við hvað við þurfum almennt að borga fyrir sumar-, eða sólarferðir umfram aðra Evrópubúa, er þetta tilboð þokkalega á parinu. Og jafnvel þó við ætluðum að vera sniðug og bóka túrinn frá Englandi þá komumst við ekkert þangað og heim aftur með töskur meðferðis um jólin undir 40 þúsund krónum á kjaft.
Til að gera langt mál stutt: óhætt að grípa þetta tilboð Norrænu ferðaskrifstofunnar ef sól heillar um jólin og sigling er draumurinn.







