Það er sama sagan. Forráðamenn Icelandair í óða önn að láta fyrirtækið kaupa eigin bréf, kaupa svo sjálfir prívat og persónulega til að bæta milljörðum við milljarðana sína. Á meðan hlaðast inn kvartanir hraðar en Usain Bolt hleypur hundrað metrana.

Hlutabréfagengi Icelandair síðustu misserin.
Aldeilis málið að setja græðgi í fyrsta sæti og viðskiptavini í annað. Það mun sannarlega fjölga viðskiptavinum Icelandair í framtíðinni. En svona rokka forsvarsmenn flugfélagsins enda fá þeir sínar milljónir gegnum laun og sporslur, frí ferðalög og whatnot hvað sem tautar og raular. Við getum aðeins vonað að öðrum hluthöfum þyki nóg um græðgina og gengi bréfa flugfélagsins lækki úr lágflugi í ground warning sem fyrst. Aðeins þannig er líklegt að núverandi forráðamenn, sem standa enn í brúnni þrátt fyrir milljarða tap á hlutabréfamörkuðum fái endanlegt spark í afturendann.
Í millitíðinni væri óhætt að lækka aðeins fimm milljón króna mánaðarlaun forstjórans um þrjár millur eða svo og bæta við eins og átta starfsmönnum í þjónustuverið á sæmilegum meðallaunum. Þannig mætti koma í veg fyrir frekari orðsporshnekki á netinu…







Nokkrar af kvörtunum yfir Icelandair aðeins síðasta sólarhring. Hvers vegna er svona flókið að bæta þjónustuna? Það kannski af ásettu ráði nú þegar sparað er í einu og öllu nema feitum greiðslum til toppanna. Ekki ólíklegt.







