Merkilegt nokk er ferðaskrifstofan Heimsferðir að gera sig breiða á síðum fjölmiðla þessa síðustu og verstu. Tilboð á tilboð ofan og sum hver æði girnileg. En þér væri nær að borga örlítið meira og snúa viðskiptum þínum annað.

Þessi ræfill, eigandi Heimsferða, vinnur dag og nótt að því að sleppa að borga réttláta skatta. Gáfulegt að sleppa viðskiptum við slíkan drjóla alfarið.
Æði skondið fyrirbæri að byggingavöruverslunin Byko skuli hafa fengið hæstu einkunn viðskiptavina í svokallaðri Ánægjuvog tvö ár í röð. Það segir sitt um heimska íslenska neytendur enda ekkert fyrirtæki annað fengið eins margar sektir hjá Samkeppnisstofnun gegnum tíðina fyrir svindl og svínarí en Byko. Þangað inn kemur enginn vitiborinn einstaklingur.
Nú berast fregnir af því að Andri Már Ingólfsson, viðskiptamógúllinn sem flaug flugfélaginu Primera lóðbeint í þrot á síðasta ári og skildi eftir einn gamlan Saab eftir í þrotabúinu, færði fyrir síðustu áramót mörg hundruð milljóna króna villu sínu í miðbænum yfir á kerlinguna sína. Slíkt gerir enginn nema óttast að eignin verða af honum tekin.
Þessi ræfill er ekki aðeins með lögheimili í Sviss, þar sem skattar duga varla ofan á brauð heldur og sagði hann upp fjölda Íslendinga á sínum tíma þegar hann flutti Primera Air eins og það lagði sig til Litháen og gerði út þaðan til að greiða lægstu laun sem þekkjast í mannheimum. Sami gaur og tók sér vel yfir tólf mánuði til að greiða bætur til flugfarþega sinna þegar eitthvað alvarlegt bjátaði á eftir að hafa hafnað öllum kröfum um margra mánaða skeið.
Þá er fátt eitt nefnt sem þessi viðskiptafrömuður hefur á samviskunni og á líklega eftir að bíta úr nálinni með enda mögulega málaferli framundan vegna undarlega lítilla eigna flugfélagsins Primera Air við þrotið síðasta haust.
Andri Már getur huggað sig við að hafa verið kosinn viðskiptamaður ársins á Íslandi fyrir margt löngu en okkur sýnist karlinn fátt gera vel nema sleppa undan að greiða skatta eins og við hin. Þjóðráð að sleppa alfarið viðskiptum við Heimsferðir meðan þessi skíthæll er titlaður eigandi þeirrar ferðaskrifstofu…







