„Hrollvekjandi uppgjör Icelandair” – Capacent segir að guð og lukkan muni ekki duga til að bæta rekstur Icelandair.

Fræðingar Capacent hafa um áraraðir verið úti á þekju hvað varðar hlutabréfagengi Icelandair. Samt taka fjölmiðlar mark á þeim aftur og aftur.

Sé eitthvað til marks um steingelda blaðamennsku á Íslandi er það vafalítið hversu margir bullukollar fá heilu síðurnar undir munnræpu sem ekki stenst neina gagnrýna skoðun. Aftur og aftur og aftur og aftur…

Einn slíkur aðili er ráðgjafafyrirtækið Capacent, hvers mat á virði hinna og þessara fyrirtækja landsins þykja mikilsverð tíðindi í öllum fjölmiðlum. Samanber ofangreinda fyrirsögn á vef Viðskiptablaðsins þar sem fjallað er um nýtt verðmat Capacent á flugfélaginu Icelandair. Þar sérstaklega tiltekið hversu há laun íslenska flugfélagið greiðir starfsmönnum sínum samanborið við ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz Air.

Af eplum og appelsínum

Ýmislegt að hjá Icelandair og vissulega er launakostnaður drjúgur hluti kostnaðar eða um 34 prósent rúmlega versus aðeins tæplega 8 prósent kostnaðar hjá Wizz Air. Líklega svipað hlutfall launakostnaðar og hjá Capacent hérlendis og Capacent í Ungverjalandi (ef fyrirtækið væri starfandi þar.)

Slíkur samanburður er svo kjánalegur að engu tali tekur. Að menn kalli sig „sérfræðinga” hjá Capacent er móðgun við allt vitiborið fólk. Þó ekki sé nema sökum þess að mismunur á meðalárslaunum í Ungverjalandi og á Íslandi er ekki nema 170 prósent samkvæmt tölum OECD. Að ekki muni meiru á launakostnaði Icelandair og Wizz Air er vægast sagt afrek hjá íslenska flugfélaginu. Þess utan njóta launþegar á Íslandi miklu betri réttinda og trygginga en Ungverjar.

Hysja upp um sig

Galinn samanburður en hreint ekki í fyrsta sinn sem „sérfræðingar” Capacent eru með allt lóðrétt niður um sig.

Nóvember 2018: Telur Icelandair undirverðlagt um 34%

September 2018: Icelandair 50% verðmætara en markaðsgengið

Febrúar 2018: Icelandair enn vanmetið á markaði

Og svo framvegis og svo framvegis. Halda mætti að forráðamenn Capacent eigi hluti í Icelandair án þess að það sé gefið upp. Eða hvers vegna annars telur Capacent árum saman að verðmat á Icelandair sé LANGT UNDIR EÐLILEGUM MÖRKUM?

Það eina sem er LANGT UNDIR EÐLILEGUM MÖRKUM er mat fagmanna Capacent á virði flugfélagsins. Virði Icelandair er bara nákvæmlega það sem fjárfestar eru reiðubúnir að greiða per hlut burtséð frá draumórum Capacent.

Og til að hamra heim þann sannleik er hér hlutabréfagengi Icelandair á markaði síðustu tólf mánuði: