Það fer afskaplega lítið fyrir en borgin Vancouver við Kyrrahafsströnd Kanada er bara stórkostleg. Vissulega fokdýr heimsóknar og flugfargjöldin ekki gefins heldur. En maður minn hvað borgin er yndisleg.

Líf í tuskum og fimm stjörnu upplifun með? Vancouver er með þetta…

Við gætum röflað okkur hás í ræðu og riti um dásemdir Vancouver.

Fólkið elskar Íslendinga og þú eignast vini bara með því að nefna það. Það er líf og neisti í borginni tuttugu og fjórar stundir alla daga ársins. Örstutt í himneska náttúru svona ef borgarlífið er ekki að gera sig og sjávarréttir á veitingastöðum borgarinnar eru almennt betri en fyrsta flokks. Svo er hægt að striplast á ströndinni líka 🙂

En við ætlum ekki að röfla okkur hás um dásemdirnar. Látum nægja að henda fram þessu myndbandi sem segir mest það sem segja þarf.

Út með þig 😉