Hmmm. Engir fjölmiðlar fjallað um þá staðreynd að við hér vöruðum feitt við Indlandsflugi Wow Air ÁRI áður en þær áætlanir settu það fyrirtækið á hausinn. Né heldur að við hér vöruðum við kaupum Icelandair á flugfélagi Cabo Verde. Kaupum sem hafa kostað fyrirtækið einn milljarð króna!

Grænhöfðaeyjaævintýri Icelandair úti…

Væri allt eðlilegt í íslensku blaðamannasamfélagi, þessu sama samfélagi og hefur fengið hálfan milljarð króna í styrk frá dóttur einhvers vafasamasta hugsanlega mafíósa Íslandssögunnar, væri staffið hjá Fararheill að fá Blaðamannaverðlaun hægri vinstri. En neibbs. Höldum áfram að verðlauna sérfræðinga sem vita ekkert í sinn haus.

Þennan daginn kemur í ljós að Icelandair og fyrrum forstjóri hafa afskrifað eignarhlut sinn í fyrrum ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja. Flugfélagið tapaði bara tæpum milljarði króna og það ÁÐUR en ungfrú kóróna gerði vart við sig.

Fyrrum forstjóri Icelandair er sennilega lélegasti yfirmaður Íslandssögunnar.

Dabbadona!

Þetta merkir að Grænhöfðaeyjaævintýri fyrrum síldarforstjóra Icelandair, Björgólfs Jóhannssonar, er úti.

Stjórinn fékk með sér slatta af ævintýraplebbum með peninga plús Icelandair sjálft til að fjárfesta á sínum tíma. Sá peningur farinn fjandans til og við ellilífeyrisþegar njótum góðs af því (ekki.)

Alas, úti er ævintýri 🙁

Eins og við spáðum árið 2018