Eins mikið og við hjá Fararheill erum hrifin af Róm þá erum við bara alls ekki hrifin af Róm í júlí eða ágúst. Ekki aðeins að túristafjöldinn sé yfirgnæfandi heldur verra að hitinn er svo mikill að þrjár til fjórar sturtur á dag er lágmark.
Við höfum síðustu dægrin fengið fyrirspurnir um hvernig komast mætti til Rómar í sumar án þess að setja slíka ferð á raðgreiðslur í átta ár eða svo. Við fórum því á stúfana og fundum eitt æði safaríkt sem gildir um ferðir í júlí og ágúst.
Þar er um að ræða tilboðsferð bresku ferðaskrifstofunnar Qwerty sem hefur skorið 20 prósent af þriggja daga túrum sínum til Rómar þennan tíma. Flug og gisting með morgunverði á fínu fjögurra stjörnu hóteli fæst nú á 37.600 krónur á mann miðað við tvo saman.
Þá er eftir að komast til Bretlands og hér er plúsinn sá að í boði er að fljúga til dæmis frá Bristol, Edinborg, Luton, Manchester eða London til Ítalíu. Hér má ekki gleyma að til þeirra fjögurra fyrstnefndu er beint flug héðan með easyJet sem oftar en ekki er að bjóða lægstu verð á flugi til og frá landinu. Það ekki algilt en í öllu falli á að vera hægt að komast út og heim aftur kringum 30 þúsund krónur á mann.
Svo má ekki gleyma öðru að þótt hiti hér rjúki vel uppfyrir þægilega gráðu þennan tíma þá er næsta auðvelt að labba inn í loftkældar verslanir í Rómarborg þegar sól er hæst á lofti. Ekki skemmir heldur fyrir að í lok júlí og vel fram í ágústmánuð er aðal útsölutímabilið í verslunum borgarinnar.
Mínusinn við þetta er vitaskuld hversu stutt ferðin er en hana má náttúrulega lengja með dvöl í Englandi eða Skotlandi fyrir eða eftir. Fyrir þá ævintýragjarnari er þjóðráð að taka slíka ferð, sleppa svo heimferðinni frá Róm og rúnta um héruð og sveitir landsins nokkra daga eða vikur í viðbót. Þægilegt er að aka á Ítalíu, hótel og gististaðir um allt svo ekki sé minnst á minjar og merkilegheit. Panta svo far heim gegnum netið á næsta hóteli þegar nóg er komið af bröltinu.
Ekki viss um hvað skal skoða eða gera? Vegvísir Fararheill um Róm gæti verið nothæfur.
Nánar um tilboð Qwerty hér en hafa í huga að hringja þarf í ferðaskrifstofuna til að bóka umrætt tilboð.








