Æði margir eru gjarnir á að nota flugleitarþjónustu Dohop þegar leita skal að flugi út í heim og ekkert nema gott um það að segja. Dohop oftar en ekki staðið sig mætavel gagnvart öðrum helstu flugleitarvélum. En svo bregðast krosstré….
Við kíktum á hvað Dohop hefði upp á að bjóða þegar leitað væri að beinu flugi til Seattle í Bandaríkjunum og heim aftur 18. til 28. júlí næstkomandi. Við fengum þetta hér:
Aðeins eitt flug í beinni í boði þessa daga og það með Icelandair og krónur 181.546 á mann. Alls ekkert okurverð eða þannig. En eins og við höfum brýnt fyrir lesendum er að gera samanburð í hvert sinn sem flug er skoðað. Oftar en ekki reynist vera verðmunur á og að þessu sinni reyndist það vera um leið og við kíktum beint inn á vef Icelandair.
Hmmm. Þarna munar sannarlega einhverjum þúsundköllum. 4.276 krónum nákvæmlega eða rúmum 8.500 krónum sé par eða hjón að ferðast saman.
En alltaf geta komið upp afkáranleg dæmi svo við leituðum aftur að fargjaldi hjá Dohop og að þessu sinni til Edmonton í Kanada í beinu flugi. Og fengum þetta:
Aftur kíktum við yfir á vef Icelandair og þá kom þetta fram:
Aftur er verðmunur á sama flugi og nú 4.293 krónur á manninn.
Við leituðum víðar og með sömu niðurstöðum og þó ekkert verði fullyrt þá er afar líklegt að Icelandair hafi slitið samningi sem var á milli Dohop og Icelandair þess efnis að fargjöld séu sótt beint á vef Icelandair. Nú þarf Dohop millilið, Travellink, sem vitaskuld þarf að fá greitt fyrir og því mælist þessi munur. Okkur sýnist þetta gilda um öll flug sem Icelandair býður.











