Samkvæmt úttektum sem gerðar hafa verið er Tæland sá áfangastaður sem Íslendingar leita hvað mest að þegar ferðalög eru á dagskránni. Þangað er oftar en ekki töluvert dýrt að fara en nú er kannski rétti tíminn.

Útsýn yfir Hua Hin sem er æði skemmtileg og vel hægt að dunda margt á rúmri viku án þess að leiði sæki að. Mynd John Cook

Útsýn yfir Hua Hin sem er æði skemmtileg og vel hægt að dunda margt á rúmri viku án þess að leiði sæki að. Mynd John Cook

Innlendar ferðaskrifstofur sem boðið hafa Tælandsferðir undanfarin ár hafa, með einstöku undantekningum, heimtað fúlgur fjár. Algengt verð frá 500 til 700 þúsund krónur á mann og munar flesta um minna.

Þess vegna er óvitlaust að kíkja á vef bresks útibús hinnar þekktu Kuoni ferðaskrifstofu og bóka þar átta daga ferð til Tælands í maí eða júní.

Hvers vegna spyrð þú og svarið er að verið er að skrúfa verð á tilteknum ferðum niður um 80 þúsund krónur miðað við parið. Frá London er komist í átta daga ferð á fjögurra stjörnu hóteli fyrir réttar 120 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Hvorki morgunverður né annað innifalið en það er minnsta málið. Tonn af fínum og hræbillegum veitingastöðum um allan bæ.

Alveg sama hvernig það er framreitt; slíkt verð er fantagott til Tælands. Bætum við flugfari til London og heim aftur og manneskjan gæti notið framandi strandlífs fyrir 170 þúsund krónur.

Fararheill hefur heimsótt Hua Hin oftar en einu sinni og gefur borginni fína einkunn. Þetta er vissulega túristaborg en ekki alveg gegnsýrð eins og Phuket, Pattaya eða Bangkok. Ströndin klettótt en fín og engum þarf að segja frá yndislegheitum heimamanna né hóflegu verði í landinu.

Allt um málið hér.