Við vonum að þið fyrirgefið okkur en þau skipti sem almenningur rís upp móti alls kyns bulli sem viðgengst í þessu þjóðfélagi okkar eru svo fátíð að þegar það loks gerist er ekki annað hægt en deila og brosa.
Á fésbókarvef ferðaskrifstofunnar Kilroy fyrir nokkru má finna þessa yfirlýsingu hér:
Látum vera að þarna sé meinleg stafsetningarvilla. Stærsta villan ef svo má að orði komast er að reyna að halda því fram að Kilroy bjóði „upp á bestu fargjöldin.“ Nokkuð sem þeir gleypa ofan í sig sjálfir eftir að nokkrir tjáðu sig á vef þeirra.
Þó færa megi rök fyrir að „bestu“ fargjöldin séu ekki endilega það sama og „ódýrustu“ fargjöldin þá er það sá skilningur sem flestir hafa þegar bestu fargjöld eru auglýst. Mjög klassískt dæmi um fyrirtæki sem slær um sig með stórum orðum en efndir öllu minni. Sömuleiðis klassískt dæmi um auglýsingu sem hefði líklega kostað fyrirtækið fjármuni vegna sekta fyrir að auglýsa eitthvað sem ekki varð staðið við. En það vitanlega aðeins hjá siðmenntaðri þjóðum en okkur. Aldrei dytti Kilroy í Danmörku að auglýsa með þessum hætti.












