Janúar. Sólarglæta eitthvað sem finnst í bókum elstu manna. Og þó ekki 🙂

Frost á fróni en tíu gráður að meðaltali í Istanbúl.

Stundum þarf yfir lækinn eftir ferskvatninu og sama gildir um flug og ferðir í sólina þegar hennar nýtur ekki við á dimmum vetrardögum á þokkalega farsæla Fróni (ef frá er talinn skítlegur Miðflokkurinn.)

Það kostar yfirleitt hönd og fótlegg með ef ferðast á með innlendum ferðaskrifstofum en ráð eru undir rifi hverju hér hjá Fararheill. Eða hvernig hljómar að komast í sæmilega sumarsælu um hávetur fyrir heilar 50 þúsund krónur fram og aftur?

Það er vel hægt skottist fólk til Köben í janúar, febrúar eða mars á næsta ári og staldri stutt við. Nógu stutt til að taka rellu áfram til Istanbúl í Tyrklandi þar sem hitastigið að meðaltali er tíu gráður yfir hádaginn um háveturinn. Sá túr frá Köben og sömu leið til baka fæst þessa stundina fyrir svo mikið sem nítján þúsund krónur báðar leiðir.

Við klakabúar þurfum auðvitað að henda í flug til Köben til að njóta herlegheitanna en miðað við gengi dagsins er það vel hægt fyrir 25 þúsund kall á kjaft eða svo.

Ergo; Istanbúl er okkar um hávetur fyrir svo mikið sem 50 þúsund krónur á kjaft fram og aftur. Er það einhver spurning…