Þeir eru ófáir verslunarglaðir Íslendingarnir sem hugsað hafa sér gott til glóðar nú þegar íslenska krónan styrkist jafnt og þétt meðan til dæmis breska pundið þjáist af bullandi niðurgangi. En það eru fleiri staðir en Bretland sem fólk ætti að hafa í huga.

Nú er tæplega 20% ódýrara fyrir Íslendinginn að versla í Kanada en fyrir ári síðan.

Nú er tæplega 20% ódýrara fyrir Íslendinginn að versla í Kanada en fyrir ári síðan.

Víst hefur Brexit þeirra Breta, útganga Bretlands úr Evrópusambandinu, haft gríðarleg áhrif á þarlend fyrirtæki. breska pundið veikst um tæplega 30 prósent gagnvart íslensku krónunni sem þýðir að það er 30 prósent ódýrara fyrir okkur að versla í London, Bristol, Glasgow eða Belfast en það var áður en Brexit var samþykkt. Alla munar um það.

En það er annar staður og ekki síðri þar sem gott gengi íslensku krónunnar gæti hleypt extra kappi í kinnar verslunarglaðra: Kanada.

Víst er ódýrara að skottast til Bretlands til að versla en Kanada en allir hafa gott af því að breyta til og tvennt sérstaklega kemur nú til. Annars vegar að kanadíski dollarinn hefur fallið verulega gagnvart krónunni á síðustu misserum og þarf reyndar að fara aftur til snemmárs 2008 til að finna hagstæðara gengi. Hins vegar sú staðreynd að með tilkomu, Icelandair og Air Canada er nú samkeppni á flugi til borga Kanada. Sem þýðir að það kostar ekki lengur hátt í hundrað þúsund kall að rúlla til Kanada og heim aftur eins og Icelandair bauð upp á um langa hríð.  Næsta auðvelt er að finna flug fram og aftur þessi dægrin allt niður í 30 þúsund kallinn.

Ekki kannski að þetta skipti orðið máli. Því miður eru flestar borgir heims orðnar helst til einsleitnar hvað verslanir varðar. Alls staðar finnast sömu búllurnar meira og minna hvort sem borgin heitir Edmonton, Vín, Tókíó eða Dúbaí.

En svona ef ferð númer sjö til Glasgow þykir lítt spennó er ráð að skoða flug til Montreal eða Toronto.