Svo þig dreymdi um túr til Kosta Ríka í Mið-Ameríku en fyrir klink og ingenting? Segðu svo að þú fáir þínar óskir aldrei uppfylltar!

Pálmatré, sandströnd og 30 gráður og það fyrir fimmtíu kallinn…

Breska ferðaskrifstofan TUI er þessar klukkustundirnar að bjóða algjör súperverð á flugi til og frá Líberíu á Kosta Ríka en gallinn sá að þú verður að ferðast næstu vikurnar. Eða hvernig hljómar túr alla leið frá Íslandi og heim aftur gegnum London fyrir heilar FIMMTÍU ÞÚSUND KRÓNUR?

Jamms, algjört djók. Það jafnvel þó Kosta Ríka sé með böggum Hildur og Álfheiðar líka þessa síðustu og verstu.

Það gekk jú megafeitur fellibylur yfir eyjuna í október 2017 með þeim afleiðingum að hundruðir létust og tugþúsundir misstu heimili sín. Það á eyju sé hefur varla fengið einn dollar frá þroskaheftum Bandaríkjaforseta vegna hamfaranna og eyjaskeggjar þurfa því að bjarga sér sjálfir.

Ekki príma að notfæra sé neyð fólks til að sóla sig og fylla búkinn af rommi og kóka kóla en hin hliðin á sama peningi er að fólk sem á ekki neitt og fær ekki neitt þarf lífsnauðsynlega á erlendu ferðafólki að halda. En aðeins ef þú gefur aðeins extra af þér 😉

PS: Lægsta verð á flugi frá London til Kosta Ríka og til baka án farangurs kostar 35 þúsund krónur. Héðan er komist til og frá London fyrir um 20 þúsund krónur þegar þetta er skrifað.

Meira hér.