Byrjum á einu myndbandi:
Þetta myndband af hruni Morandi brúarinnar í Genóa á Ítalíu sem kostaði tæplega 50 manns lífið fyrir réttu ári síðan.
Nú er ráð fyrir Ítalíufara að hlusta/lesa og sérstaklega þá sem ætla sér að aka þvers og kruss um landið. Samkvæmt gögnum sem fjölmiðillinn Corriere della Sera hefur undir höndum eru hvorki fleiri né færri en tæplega 1500 brýr í landinu sem enginn hefur eftirlit með og gætu hrunið þá og þegar áður en þú getur sagt heibabbílúlla.
Jamms. Kemur ekki á óvart. Ítalska ríkið varla haft efni á að panta pizzu undanfarin áratug eða svo og ríkið virðist ekki einu sinni hafa efni á að varðveita gögn um eftirlit með hvaða brýr landsins er í höndum einkaaðila og hverjar í höndum ríkisins. Jafnvel þó Ítalirnir séu með þann þátt á hreinu þá eru fjármunir af skornum skammti og fjarri því að duga til eðlilegs viðhalds.
Sem þýðir að einn hér úr ritstjórn ætlar að fljúga frá Mílanó í norðurhlutanum til Crotone í suðurhluta landsins í desember en upphaflega hugmyndin var að ferðast þá leiðina með lest sem fer yfir 70 brýr á leiðinni.
Allur er varinn góður…







