Yfirborðsmennska punktur is. Einn úr ritstjórn, 79 kíló plús sex kílóa handfarangur, þurfti að láta sér lynda að deila sæti með 112 kílóa konu frá Bandaríkjunum sem hafði með sér tuttugu kílóa tösku plús átta kílóa handfarangur. Sú feita borgaði 37 þúsund fyrir flugið til Hamborgar og til baka til Íslands með allt sitt hafurstask meðan ritstjórnarmeðlimurinn pungaði út 44 þúsund krónum fyrir sama pakka.

Oft er á lítinn hallað í flugi

Hmmm. Skoðum þetta nánar.

Einn 79 kílóa ritstjórnarmeðlimur greiddi 44 þúsund krónur fyrir flug fram og aftur með Icelandair til Hamborgar í Þýskalandi. 79 kíló plús sex kíló handfarangur: samtals 85 kíló.

Farþegi í næsta sæti, 112 kíló samkvæmt hennar eigin yfirlýsingu, plús 20 kílóa taska plús tíu kílóa handfarangur, sem samtals vegur 142 kíló fékk sama flugið frá Keflavík til Hamborgar og sömu leið til baka á 37 þúsund krónur. Hér ber þó að hafa í huga að viðkomandi keypti flugið til Hamborgar frá Keflavík sem pakka frá New York og vitaskuld sömu leið til baka.

Alveg príma. Icelandair alveg að hugsa um umhverfið og hlýnun jarðar hundrað prósent (EKKI.) Plús að þessi mjói í ritstjórn ætlar aldrei aftur að fljúga með Icelandair. Mismunun á hæsta stigi.