Jamm og jæja. „Fjölmiðillinn” DV nær ekki símasambandi við manneskju sem kvartaði á samfélagsmiðlum um að hafa verið rænd öllu. Þar með töldum símanum.

Margt fólk gengur lítt heilt til skógar í kollinum. Íslensk kona á Spáni virðist ein af þeim.

Öll erum við fædd þokkalega vitlaus en það þarf að vinna æði hart að því að vera vitlaus áfram út ævina eins og meðlimir Miðflokksins geta vitnað um.

En það þarf töluverða leikni til að vera svona vitlaus:

Guðrún segir að atvikið hafi átt sér stað fyrir utan verslun nokkra á Costa Blanca-svæðinu. „Ég var rænd í dag fyrir utan Consum matvöruverslunina. Töskunni minni stolið með símanum, húslyklum, bíllyklum, vegabréfinu, ökuskírteini og bankakortum. Ég er símalaus og með engin númer eða peninga. Þjófurinn lagði fyrir mig gildru, setti peningabuddu og smápeninga á jörðina fyrir aftan bílinn minn. Ég var rétt sest inn í bílinn og var að fara fara að loka hurðinni þegar hann kallar og bendir og bendir fyrir aftan bílinn og spyr hvort ég hafi misst veskið,“ lýsir Guðrún.

Hún segist hafa látið blekkjast og farið að kanna málið. „Ég fór út úr bílnum til að athuga málið. Meðan ég beygði mig þá snaraði hann sér hinum megin við bílinn farþegameginn og tók töskuna mína með öllu í. Sef ekki því þeir eru með lyklana að íbúðinni og ég veit EKKI hvort þeim tekst að finna heimilisfangið. Þeir eru líka með bíllyklana, símann, öll kort og skilríki. Búnir að tæma reikninginn minn hérr. Svo ég á ekki krónu,“ segir Guðrún sem er augljóslega miður sín.

Hmmm! Sitthvað bogið við þessa frétt af rányrkju á Spánarströndum.

A) Hvað er manneskjan að gera með vegabréfið sitt í verslunarferð?

B) Hvers vegna trúir hún að veski hennar sé fyrir aftan bílinn þegar hún er með veskið sitt Í BÍLNUM?

C) Hvers vegna tók það viðkomandi 5 mínútur að beygja sig fyrir aftan bílinn og ganga úr skugga um að veskið væri ekki hennar? Hefðbundin beygja tekur svona sirka tvær til sjö sekúndur nema viðkomandi sé fatlaður. En hún beygði sig nógu lengi til að herra plebbi gat opnað farþegahurðina, gripið veski og hlaupið burt áður en hún kveikti á peru.

Klárlega skal alltaf hafa vara á sér erlendis sem hérlendis. Vafasamt fólk um allar trissur. En það þarf vægast sagt greindarvísitölu við frostmark til að fara að leita að veski bakvið bíl þegar viðkomandi er með veskið í bílnum.

Líklega tóm græðgi. Viðkomandi ætlað að gera tilkall til „veskisins” sem fannst bak við bílinn. Stupid is what stupid does…

Að því sögðu þá ítrekum við það sem við höfum sagt margoft áður. Miðað við fátæktina víða á Spáni plús fjölda ferðafólks með vasa fulla af seðlum er vægast sagt merkilegt hvað glæpir og smáþjófnaðir eru fáir í landinu.