Ofangreind fyrirsögn hefði getað verið „Mun auðveldara fyrir ferðamenn að heimsækja Machu Picchu eftirleiðis,” en okkur hér fannst það helst til mikið rugl. Því það er ekkert annað en bjánaháttur að byggja glænýjan flugvöll nánast í göngufæri frá einni helstu perlu mannkynssögunnar.

Hin magnaða fjallaborg Inkanna er kostuleg frá A til Ö. En það eru síðustu forvöð að kíkja áður en túrismi verður yfirgengilegur.

Því miður er það raunin suður í Perú þar sem stjórnvöld hyggjast gera erlendu ferðafólki það mun auðveldara að heimsækja hinn magnaða stað Machu Picchu í Andesfjöllum í framtíðinni. Þar rís nú flottur nútímalegur flugvöllur í næsta nágrenni og vonir standa til að með auðveldari aðgangi megi fjölga erlendum ferðamönnum á svæðið vel umfram þá rúmu milljón ferðamenn sem heimsækja Machu Picchu árlega.

Helsta ástæða þess að „aðeins” ein milljón manns sækir Machu Picchu heim þessa síðustu og verstu er einmitt sú staðreynd að það þarf að hafa aðeins fyrir hlutunum til að vitna þetta merka mannanna undur. Evrópubúar þurfa að lenda í höfuðborginni Líma og þaðan taka flug eða lest til borgarinnar Cusco. Frá Cusco þarf svo að leigja bíl, taka rútu eða lest að Machu Picchu og sá rúntur tekur allt frá 30 mínútum til þriggja klukkustunda eftir fararmátanum. Og það er auðvelda leiðin. Margir kjósa að labba Inkaleiðina svokölluðu að musterinu á fjallsbrúninni og sá túr tekur þrjá til fjóra daga með góðri leiðsögn.

Glænýr millilandaflugvöllur út í rassgati mun breyta þessu öllu og framkvæmdir eru þegar hafnar suður í Perú. Hugmyndin er að innan fimm ára geti erlend flugfélög flogið rakleitt til bæjarins Chinchero sem er staðsettur í sama dal og hin helga fjallaborg Inkanna. Tuttugu mínútna leigubílarúntur frá flugvellinum og dýrðin blasir við augum.

Sem þýðir auðvitað að leti bornir ferðamenn munu nýta sér þessa hraðleið 24/7. Enda jú ekkert varið í að kynnast heimafólki og læra um stórmerka menningu lands og þjóðar þegar hægt er að fá helsta klabbið með flýtimeðferð. Ekki ósvipað fólkinu á Suðurlandsundirlendinu sem dreymir um sinn eigin millilandaflugvöll hérlendis mitt á milli Gullfoss og Geysis svo meiri peningar renni nú til Sunnlendinga en ekki Suðurnesjinga…

Þjóðráð að drífa sig að skoða Machu Picchu innan fimm ára áður en staðurinn verður svo fótum troðinn af milljónum á milljónum ofan að hann missir allan sjarmann.