Við hér gagnrýnt þessa súperlélegu þjónustu árlega síðan 2012. Ef þú vilt finna lægsta fargjald eða bara ódýrt fargjald með Icelandair út í heim þarftu að fletta þúsund síðum eða svo og nota til þess nokkrar klukkustundir. En þú þarft þess ekki lengur.

Segjum sem svo að þú viljir gjarnan til Toronto í Kanada en viljir kosta sem minnstu til. Þú ferð á vef Icelandair og setur inn einhverjar dagsetningar af handahófi. Allt fokdýrt þar. Þá skoðaðu aðrar dagsetningar en allt fokdýrt þar líka. Þú setur inn enn aðrar dagsetningar en viti menn! Rándýrt líka. Hvenær eiginlega er hægt að finna lægstu fargjöld Icelandair til Toronto?

Þig langar ódýrt til Toronto í maí eða júní og leitar á vef Icelandair. Abbababb! Engin verð uppgefin 🙁

Trixið er að leita alls ekkert hjá Icelandair. Flugfélagið hefur ekki sýnt því einn einasta lit um átta ára skeið að einfalda vefleit eða einfalda leit að lægstu fargjöldum.

En vissurðu að þú getur gefið Icelandair feita löngutöng með því að brúka Google Flight:

Ólíkt Icelandair sem heimtar að þú leitir að nál í heystakki um áraraðir til að finna sæmileg fargjöld þá fer Google ekkert fram á slíkt. Þar er nefninlega þjónusta í forgrunni. Þú færð á augabragði lægsta verð á flugi HVERN EINASTA DAG marga mánuði fram í tímann. Þar ekki aðeins lægsta verð Icelandair heldur lægsta verð allra aðila sem hugsanlega bjóða það flugið.

Ef Icelandair getur ekki sýnt okkur lit þá sýnum við þeim engan lit heldur. Google Flight hér.