Fararheill hefur áður fjallað um mikilvægi þess að standa ekki naglföst á sérstökum dagsetningum þegar ferðalög eru skipulögð nema nauðsyn beri til.
Okkur reiknast til að með sveigjanleika og sæmilegum fyrirvara sé vel hægt að spara allstórar upphæðir á flugi, hótelum og bílaleigubílum.
Við stærum okkur ekki af hávísindalegum athugunum en við bárum saman flug, dvöld og bíl í London og Munchen annars vegar með litlum fyrirvara í júlí og aftur sams konar pakka í september. Kannski ekki samanburðarhæft enda ferðast fleiri á sumrin en veturna en engu að síður kom okkur verðmunurinn á óvart.
Vika í London í júlí með sæmilegu hóteli í sjö nætur og bílaleigubíl í fimm daga fæst ekki undir 210 þúsund krónum eftir því sem við komumst næst. Sami vikupakki í Munchen í næsta mánuði kostar okkur 240 þúsund krónur að lágmarki.

Að sama skapi er ekki alveg rétt að segja mikið að gera þegar 39% hótela eru uppbókuð en fínt hjálpartæki samt.
Ef við færum dagsetninguna frá annatíma með þriggja mánaða fyrirvara fæst London pakkinn í september á 180 þúsund og meira að segja Munchen í lok september, sem er annatími þar í borg vegna Októberhátíðarinnar, fæst 20 þúsund krónur ódýrari en í júlí.
Ágætt trix sem hefur reynst Fararheill vel er að skoða hversu mörg hótel á hverjum stað fyrir sig eru með laus herbergi á þeim dagsetningum sem leitað er að. Allflestar hótelbókunarvélarnar gefa það upp og ein þeirra, Booking.com, stendur sig enn betur og birtir á stundum tilkynningu um hversu mörg prósent hótela eru uppbókuð þann og þann tíma. Sagan sýnir að hótelverð eru mjög fljótandi og hækka og lækka tiltölulega ört eftir framboði og eftirspurn. Sé meirihlutinn bókaður er alveg pottþétt að verð eru hærri á þeim sem eftir eru.








