Ritstjórn Fararheill finnur sig knúna til að vara ferðaþyrsta Íslendinga við viðskiptaháttum bandaríska flugfélagsins Delta Air Lines sem flýgur meðal annars milli Keflavíkur og New York. Að minnsta kosti tvívegis svo við vitum til hefur það verð sem greitt hefur verið fyrir flugmiða með félaginu reynst ívið hærra þegar upp var staðið en uppgefið verð við bókun.
Flugfélagið bandaríska tiltekur í smáa letrinu á vef sínum að það verð sem ferð er keypt á með korti á vef þeirra geti tekið breytingum á meðan greiðsla er staðfest af hálfu flugfélagsins. Og hjá Delta getur sá tími verið skrambi langur.
Nýlega var okkur bent á að einstaklingur sem keypti flug með félaginu seinnipart sunnudags og taldi sig hafa keypt flugfar á rúmar 153 þúsund krónur fékk reikning upp á rúmar 165 þúsund krónur. Gögn kortafyrirtækis mannsins sýndu að flugfélagið hafði ekki staðfest flugið fyrr en sólarhring eftir bókun. Í því tilfelli var aðeins ein bókun af tveimur staðfest. Enn lengri tíma tók að fá staðfestingu á að öll flug væru bókuð og greidd og því staðfest.
Svör þess sem Delta kallar „þjónustuver“ voru á þá leið að þetta væri aldeilis leiðinlegt en svona væri þetta bara. Fyrirspurn Fararheill vegna þessa fór líklega í ruslið því engin hafa svör borist.
En þó hið fína þjónustuver standi ekki undir nafni fann Fararheill skýringu á þessu með því að þræða kvartanir viðskiptavina Delta á netinu. Í ljós kemur, hversu kjánalega sem það hljómar fyrir Íslendinga, að fyrirtæki það sem sér um að afgreiða og staðfesta flug, bókun og sölu fyrir hönd Delta er fyrirtækið ARC. Og hjá ARC er einfaldlega ekkert afgreitt um helgar og á hátíðisdögum. Þar virðast menn bara henda á grillið og slaka eins og íslenskir bankamenn eftir klukkan fimm fyrir nokkrum árum.
Með öðrum orðum; þó bókuð sé ferð og hún greidd og jafnvel prentaðir út rafrænir farmiðar er það EKKI hundrað prósent víst að flugið sé fast í hendi. Og breytist gengi á þeim tíma upp á við sem það tekur að endanlega niðurnegla bókað flug greiðir háttvirtur viðskiptavinurinn þann kostnað.
Hægt á að koma í veg fyrir slíkt með því að gæta þess að bóka ekki með Delta um helgi eða á frídögum vestanhafs en tekið skal fram að þetta er ekki algengt vandamál heldur tilfallandi.







