Það hefur kannski ekki mikið farið fyrir fréttum af því hér á klakanum en þetta hefur ekki beint verið gott ár fyrir skemmtisiglingar. Sérstaklega ekki fyrir Carnival Cruises. Forstjórinn, sonur stofnandans, hefur tekið pokann sinn.
Sonurinn fær reyndar feitt sæti í stjórn þessa stærsta skemmtiferðaskipafélags heims þrátt fyrir allt enda hann stærsti hluthafinn í þokkabót og þarf því lítt að hafa áhyggjur af tómum ísskáp eða bankareikningi. Í öllu falli getur hann selt körfuboltaliðið Miami Heat ef hann vantar klink.
Það var hins vegar á hans vakt sem þetta risafyrirtæki lenti í þremur grafalvarlegum aðstæðum síðustu misserin sem öll fengu mikla athygli fjölmiðla og grófu undan vinsældum þess fyrirtækis. Svo mjög að dagblaðið USA Today segir pantanir þetta árið fjórðungi minni en í meðalári.
Það fyrsta var vitaskuld ævintýralegt strand Carnival Costa Concordia undan ströndum Ítalíu þar sem 32 létu lífið að því er virðist fyrir vitleysishátt skipstjórans. Annað atvikið var þegar Carnival Triumph varð vélarvana í Mexíkóflóa fyrr í vetur og nokkra sólarhringa tók að koma skipinu í höfn. Þann tíma þurftu farþegar meðal annars að leggja sér myglaðan mat til munns og vaða skít og piss um alla ganga enda rafmagnskerfi skipsins steindautt. Svipað atvik henti Carnival Dream skip félagsins nýlega en þá draps fyrirvaralaust á vélum skipsins og eftir langa mæðu varð að fljúga rúmlega fjögur þúsund farþegum skipsins heim frá næstu eyju í Karíbahafi.
Fyrir þá sem hugsa gott til glóðarinnar að hafa ekki átt viðskipti við Carnival skal það upplýst að það fyrirtæki er móðurfélag skemmtiferðaskipafélaganna Cunard, Costa, Princess og Holland America og Carnival er með vel rúmlega 60 prósent markaðshlutdeild skemmtiferðasiglinga í heiminum.
Mjög eðlilegt allt saman en þýðir reyndar líka að sökum dræmrar eftirspurnar hefur ekki verið ódýrara að bóka með Carnival en nú um nokkurra ára skeið.







