Vetur konungur mættur á klakann með allt sitt botnfrosna fylgdarlið. Þá er nú aldeilis tíminn til að gera sér dagamun erlendis og þá sakar ekki ef lággjaldaflugfélagið easyJet lækkar verðið á flugferðum sínum um extra 20 prósent fram í febrúar 🙂

Lággjaldaflugfélagið easyJet með helling á fargjöldum á 20 prósenta afsláttarkjörum þessi dægrin. Skjáskot
Amms, þú last þetta rétt. EasyJet er að henda duglegum slatta af flugsætum á vetrarútsölu og áhugasömum gefst kostur á að bóka á þeim fargjöldum allt fram í febrúarmánuð.
Vissulega verra að easyJet flýgur ekki héðan beint í sól og sælu við Miðjarðarhaf en á móti kemur að það er fjarska erfitt að kvarta og kveina yfir flugi aðra leið til Edinborgar fyrir svo mikið sem 2.076 krónur á kjaft. Þrjú þúsund og fjögur hundruð krónur aðra leiðina til Manchester er líka djók út í eitt svo ekkert sé nú talað um flug til Belfast fyrir svo mikið sem 1.960 krónur.
Umræddar borgir kannski ekki á topp fimm svona þegar við þurfum að skafa bílrúðuna bæði á leið í vinnu og frá en þá er ráð að muna að frá velflestum sínum áfangastöðum í Bretlandi býður easyJet líka upp á framhaldsflug til sólríkari staða og þá gjarnan líka á verði sem fyllir dimm hjörtu af sólaryl.







