Sé mark takandi á skoðanakönnun Fararheill er langur vegur frá að póstkort tilheyri sögubókum. Rétt 40 prósent þátttakenda í könnun okkar segjast enn þann dag í dag senda heim póstkort á ferðalögum erlendis.

Úrelt fyrirbæri? Ekki alveg samkvæmt úttekt okkar.

Úrelt fyrirbæri? Ekki alveg samkvæmt úttekt okkar.

Það kann að hljóma lítið með tilliti til að varla er mikið meira en tuttugu ár síðan nánast allir sendu póstkort heim á þvælingi sínum erlendis. Síðan hefur orðið mikil bylting og má furðu sæta að enn viðurkenni svo margir að handskrifa sín eigin póstkort.

Kannski er það hrein nostalgía eða almennt meiri væntumþykja því það er öllu meira mál að senda póstkort en að hamra nokkrar línur á Snapchat, Facebook eða í tölvuskeyti. Póstkortin miklu persónulegri auðvitað og efalítið finnst flestum það töluvert yndislegra að fá eitt svoleiðis gegnum lúguna en skitið rafrænt skeyti.

Í öllu falli reyndist 40 prósent enn senda póstkort meðan 57 prósent segja það ekki hvarfla að þeim. Þrjú prósent segjast reglulega senda sérstök rafræn póstkort

Ekki er um vísindalega könnun að ræða á neinn hátt en niðurstaðan gefur ákveðnar vísbendingar um stöðu mála. Alls tóku 2842 þátt að þessu sinni.