Fimmtíu þúsund krónur fram og aftur til Japan frá Evrópu er súperprímagóður díll á öllum tungumálum. Það er einmitt það sem er í boði þessi dægin frá fjölmörgum borgum Spánar.

Fátt leiðinlegt við Tókíó í Japan.

Ahhhh. Ekkert athugavert við Japan eða Japani og ferð þangað skilur eftir minningar fram á dánardægur.

Túr fram og aftur til lands hinnar rísandi sólar frá flestum evrópskum borgum kostar jafnan ekki undir 75 þúsund kallinum á kjaft og þá miðað við sardínufarrýmið. Það lágmarkið meðan eðlilegt verð þá leiðina og til baka fækkar seðlum í veskinu yfirleitt um 90 til 100 þúsund krónur eða svo.

Sem aftur merkir að 50 kallinn er súperdúpertilboð á löngu flugi til Asíu og heim aftur. Við getum neglt þetta alla leiðina héðan ef við komumst til borga Spánar á góðum prís og á köflum er þangað komist fram og aftur fyrir þetta 25 til 30 kall á kjaft. Sem merkir að Tókíó er okkar fyrir 75 þúsund krónurnar eða svo 🙂

Sakar ekki að skoða málið ef þú elskar Asíu og vilt kannski sóla þig á Spáni í nokkra daga fyrir og eftir. Flug á þessu verði í boði frá borgum á borð við Malaga, Madríd, Barselóna og Valensíu langt fram eftir næsta ári. Nánar hér.