Allir sem dvalið hafa í París í júlí hafa efalítið látið sér detta í hug einu sinni eða tvisvar að stökkva út í ánna Signu til að kæla sig niður í verstu sumarhitunum. Það var lengi vel vinsæl dægrastytting borgarbúa vel fram á níunda áratug síðusta aldar en blátt bann lagt við slíku eftir það vegna mengunar í ánni.

Áin Signa liðast gegnum ýmis hverfi Parísar en ekki hefur verið talið hollt lengi að stinga sér til sunds vegna mengunar
Eftir margra ára hreinsunarstarf átti þetta að vera árið sem öllu breytti því fyrsta almenningssundið í Signu í áraraðir er áætlað í byrjun september enda áin orðin mun hreinni en áður var og nógu hrein til að þar sé hægt að synda án þess að verða holdsveikur í kjölfarið.
En þó tekist hafi að hreinsa Signu nægilega vel til að sundfólk geti tekið þar sprett er þó langur vegur frá að áin sé ýkja spennandi til sunds eða kælingar. Franska lögreglan finnur þar alls kyns óþverra hvern einasta dag. Vikulega er lík dregið úr ánni þar sem hún rennur gegnum París og í síðustu viku fannst þar dauð kyrkislanga og það ekki af minnsta taginu. Vóg slangan atarna lítil 40 kíló.
Það er því kannski ekki svo ýkja sniðugt að demba sér út í Signu þó hitarnir séu þig að drepa á ferð um borgina.






