Ef marka má flugáætlun Wow Air næstu mánuðina dregur verulega úr framboði og áfangastöðum félagsins nú strax frá og með október. Eins og staðan er nú verður aðeins flogið áfram í vetur til London, Kaupmannahafnar og Berlínar.
Tímabundið eða endanlegt hlé verður gert á ferðum til annarra áfangastaða flugfélagsins nýja sem tók til starfa í byrjun júní og var og er, að mati Fararheill, kærkominn aðili á það sem var bölvaður einokunarmarkaður í flugi til og frá landinu.
Þegar eru þó ferðir til nokkurra áfangastaða niðurnegldar á næsta ári þó hlé verði gert yfir háveturinn. Þannig hefst flug til Alicante að nýju í mars á næsta ári en síðustu ferðir Wow þetta árið er í lok október. Aftur verður flogið til Varsjár á næsta ári að nýju og flogið verður til Salzburg um þriggja mánaða skeið frá desember til febrúar.
Aðrir staðir falla út miðað við bókunarvél Wow þann 18. júlí 2012. Vel er þó mögulegt að ekki sé búið að færa inn áætlun næsta árs sem efalítið verður frábrugðin enda menn nú komnir með reynslu af áfangastöðum sínum og ekki síður óvæntri samkeppni á stöku leiðum.
Ritstjórn getur þó ekki fengið staðfest hver dagskráin er næsta árið þar sem Fararheill.is virðist vera í frysti hjá Wow Air eftir að hafa skrifað heiðarlega um þjónustu og aðbúnað í jómfrúarferð félagsins.







