Tíðindi

Fimm góð og ÓDÝR hótel í New York

  19/07/2012desember 12th, 2013No Comments

Við erum ekki að plata. Það eru raunverulega til góð OG ódýr hótel í New York. Jebbsídeisí. Við leituðum og leituðum eins og Biblían segir vænlegast og viti menn; við fundum.

Það sem gerist í New York verður eftir í New York. Nema nöfnin á fimm merkilega ódýrum hótelum…

Það er jú ekki á allra færi að dvelja í New York lengur en eina mínútu nema eiga pabba sem faldi fúlgur á Tortóla eða mömmu sem var í slitastjórn föllnu bankanna í kjölfar hrunsins. Og jú, kannski líka þeirra sem luma á einhverjum kvóta.

Fyrir okkur hin er vandi á höndum sé ferð til New York fyrir dyrum. Ferðin sjálf fæst kannski á bærilegu verði en að gista í borginni  kostar jafnan fúlgur og fúlgur með stóru effi.

Nema í þessum fimm tilfellum (sjá kort neðst á síðunni):*

  • The Pod Hotel >> Ok, herbergin eru afar lítil en nægilega stór til að skipta um skoðun. Tveggja manna herbergi fæst hér með smá fyrirvara allt niður í 14.000 krónur.
  • Sohotel  >> Tiltölulega vel staðsett á Manhattan og prísinn ekki brattari en tæpar 16.000 krónur fyrir nótt í tveggja manna herbergi.
  • Hotel91 >> Eigum við að ræða eitthvað stemmarann í Kínahverfinu? Hotel91 steinliggur þar og prísinn fyrir vistlegt tveggja manna herbergið hangir í 10.500 krónum sem er gjöf í þessari borg.
  • Condor Hotel >> Billegt og tiltölulega miðsvæðis nálægt Brooklyn brúnni. Fínar einkunnir gesta á Tripadvisor og prísinn aðeins rúmar frá 14.000 krónum.
  • Broadway Hotel & Hostel >> Meira hostel en hótel og í þeim klassa en herbergin fín og staðurinn ekki langt frá Central Park garðinum. Og 7.800 krónur nóttin er bara djók þó það sé tilboðsverð ákveðna daga.

* Verð fundin á vef Hotelscombined.com klukkan 21. þann 19. júlí 2012. Hafa skal í huga að verð breytast hratt og verð eru mismunandi milli bókunarvéla. Miðað við meðalgengi krónu gagnvart dollar sama dag.


View Fimm billeg hótel í New York in a larger map