Tíðindi

Börnin fljúga tímabundið frítt með Wow Air

  19/07/2012No Comments

Samkeppnin í fluginu tekur á sig ýmsar myndir og flestar góðar fyrir okkur neytendur. Nú bryddar Wow Air  upp á þeirri nýbreytni að bjóða börnum frítt með foreldrum í ágúst og fram í september í allar ferðir flugfélagsins til Þýskalands.

Er ekki allt frítt af hinu góða fyrir harðvinnandi meðajóninn? Júbbs og því er plús að komast erlendis og fá frítt fyrir börnin

Í ofanálag við lág fargjöld almennt er þetta til eftirbreytni og þarna getur fjögurra manna fjölskyldan sparað sér gróflega reiknað um fimm til tíu þúsund krónur á barn en miðað er við barn yngra en 11 ára.

Sá ljóður er á tilboði flugfélagsins að það gildir aðeins til Þýskalands en þangað flýgur Wow til Berlínar, Kölnar og Stuttgart. Flogið er til þeirra tveggja síðarnefndu út ágúst en tilboðið gildir til 15. september til Berlínar.

Þá má reyndar líka finna að þeirri tilhögun að takmarka tilboðið við eitt barn per hvert foreldri en það væri kannski of langt gengið í gagnrýninni.