Tíðindi

Dómsdagur tryllir lýðinn

  18/07/2012janúar 10th, 2014No Comments

Einhverra hluta vegna finnst fólki hugsanlegur dómsdagur afskaplega heillandi. Svo heillandi að fjöldi ferðamanna til Belís, Hondúras og Gvatemala hefur aldrei verið meiri en í ár.

Þessar þrjár þjóðir, auk hluta Mexíkó, standa á því sem áður var yfirráðasvæði Maya ættbálksins en töluvert af misgáfuðum spekingum hafa reiknað út að samkvæmt aldagömlu tímatali Mayanna verður heimsendir eða stórkostlegar breytingar hér á jörð þann 21. desember næstkomandi.

Alvöru vísindamenn telja nú reyndar að Mayarnir hafi nú ekki alveg hitt naglann á hausinn í fornum spádómum sínum og þaðan af síður setja þeir mikla vigt á þann fjölda fólks sem básúnar nú í allar áttir að heimsendi sé á næsta leyti.

Það breytir ekki því að aldrei hefur ferðamannafjöldinn til ofangreindra landa verið meiri en öll hafa ferðamálaráð þessara landa gert mikið úr.

 


View Áhrifasvæði Maya á öldum áður in a larger map