Fararheill hefur áður fjallað um Súper-Þriðjudagana hjá norska lágfargjaldaflugfélaginu Norwegian sem kjörleið til að komast út í heim á lágmarksprís. Þennan þriðjudag er til dæmis í boði til miðnættis að norskum tíma flug aðra leið til Split í Króatíu og Istanbúl í Tyrklandi fyrir rétt rúmar sjö þúsund íslenskar krónur.
*
Vitaskuld vantar þar inn kostnað við flug héðan til Osló en slík fargjöld er hægt að fá á tilboðum frá 15 til 30 þúsund aðra leiðina. Þannig verður samt sem áður komist til Istanbúl, svo dæmi sé tekið, vel undir 40 þúsundum aðra leið.
Vissulega er það gjald komið langleiðina upp í eða yfir fargjöld héðan til Spánar svo dæmi sé tekið en engu að síður er þetta kjörin leið til að greiða svipað verð fyrir ferð til Tyrklands og til Spánar héðan. Tyrkland er jú oggupons lengra í burtu og þar er vín og matur oftar en ekki á lægra verði en á Spáni. Sömu sögu er að segja af Split í Króatíu en engin ferðaskrifstofa íslenks býður þangað ferðir reglulega. Er það þó einn allra vinsælasti áfangastaður Evrópubúa sem vilja sól á billegu verði.
Súper-Þriðjudagar Norwegian eru vitaskuld alltaf í boði á þriðjudögum frá átta á morgnana til miðnættis sama kvöld. Áfangastaðir á tilboðum eru þó mismunandi hverju sinni.
* Miðað við miðgengi krónu gagnvart norskri krónu kl. 16 þann 17. júlí 2012.






