Það er víðar en hérlendis sem miklar tafir og seinkanir verða á farþegaflugi. Um helgina lenti loks í New Jersey vél United flugfélagsins með farþega frá Shanghai í Kína. Fluginu hafði þá seinkað um þrjá daga og þjónusta öll með allra lélegasta móti.

Jæja, gott fólk, það verður smá bið gæti þessi yfirmaður United flugfélagsins verið að segja æstum farþegum sem bíða þurftu í þrjá daga eftir ferðinni heim
Áttu farþegarnir upphaflega heimflug á miðvikudaginn var en því flugi var frestað vegna lítilsháttar bilunar. Voru farþegarnir sendir á hótel en um miðjan næsta dag var þeim tilkynnt að nauðsynlegur varahlutur kæmist ekki til Shanghai í tæka tíð til að flogið yrði þann daginn. Við tók önnur nótt á hóteli.
Á föstudeginum var farþegum tilkynnt að þeim yrði komið fyrir í öðru flugi til Bandaríkjanna seinnipartinn en þá gerðist það að farþegar sem áttu bókað með þeirri vél áttu forgang og sú var næsta full. Kom til handalögmála á flugvellinum í Shanghai vegna þessa milli farþeganna sem áttu bókað og hinna sem höfðu beðið.
Leystist það farsællega að því er virtist þegar biðfarþegarnir fengu að vita að upprunalega vélin væri nú orðin klár og stigu allir nú þar um borð.
Til þess eins að heyra í kallkerfinu að reglur kvæðu á um að áhöfnin fengi hvíld og þeir því sendir út á ný.
Til að bæta gráu ofan á svart gekk þeim illa að finna farangur sinn og margir fengu hann ekki í hendur. Aftur kom til handalögmála milli brjálaðra farþega og nú við áhöfn United vélarinnar.
Þrettán klukkustundum síðar fór vélin loks í loftið og lenti í New Jersey þrettán klukkustundum síðar. Hefur það verið æði taugaþrungin flugferð eins og nærri má geta.






