Rúmlega 40 einstaklingar létu lífið þegar flug Aeroflot 1492 brotlenti á Sheremetyevo flugvelli við Moskvu fyrir réttu ári síðan. Mögulega lét það fólk lífið út af hreinni heimsku annarra farþega.

Nauðlendingin sem um ræðir. Ýmislegt bendir til þess að farþegar hafi látið lífið vegna þess að aðrir farþegar vildu ekki yfirgefa vélina án farangurs síns. Skjáskot
Sukhoi rella Aeroflot á leið til Murmansk í maí í vor snéri snarlega við til Sheremetyevo flugvallar þegar eldingu laust niður í vélina í flugtaki með þeim afleiðingum að flugstjórnartæki rugluðust að því er fregnir herma. Nauðlendingin var hörð og eldur kviknaði um borð með þeim afleiðingum að 42 létu lífið.
Ók, burtséð frá því að flugvélar eru hannaðar til að fá á sig eldingar vandræðalaust og sú skýring sé vafasöm þá bendir ýmislegt til þess að tala látinna hafi verið svo há sökum þess að margir um borð vildu fyrir engan mun drífa sig frá borði án þess að taka með sér handfarangurinn!!!
Það dugði sem sagt ekki til að rellan hefði brotlent, allur afturhlutinn væri brennandi og hætta á að vélin spryngi í loft upp plús að allir flugþjónar öskruðu á farþega að skilja farangur eftir og drífa sig út sem fyrst.
Neibbs. Samkvæmt vitnum sem lifðu af og niðurstöðum fluglysanefndar reyndi fjöldi fólks að grípa handfarangur sinn með áður en hoppað var frá borði. Það tafði vitaskuld allt og alla og getur mögulega hafa kostað mannslíf.
Hvað í ósköpunum er svona merkilegt í handfarangri að þú grípur draslið með á sama tíma og eldtungur eru að sleikja á þér rassgatið við brotlendingu? Eru það Boss nærurnar? Hundrað þúsund króna iPadinn sem þú getur ekki lifað án? Alzheimer-töflurnar?
Algjörlega galið. Er líf fólks virkilega ekki meira virði en skitins handfarangurs?







