„Kortið sem kemur þér út“ er slagorð þeirra sem ota að þér American Express kreditkorti hérlendis og má til sanns vegar færa ef þú takmarkar alla þína verslun við sirka sjö staði á Íslandi. Það er hins vegar ekki kortið sem þú ættir að hafa með þér út.

Eina kortið sem þú ættir ALLTAF að hafa með til Evrópu. Skjáskot

Eina kortið sem þú ættir ALLTAF að hafa með til Evrópu. Skjáskot

American Express glímir við sama vanda erlendis og hérlendis. Prósentan sem kortafyrirtækið heimtar af söluaðilum er hátt umfram það sem önnur kortafyrirtæki vilja sem þýðir að meirihluti kaupmanna og söluaðila taka það kort alls ekki gilt sem greiðslu. Það má því vera að það komi þér út með ódýrari hætti en erlendis er ekki á það treystandi mikið.

Það er hins vegar annað kort sem merkilega margir gleyma að hafa með sér út og þá er átt við ferðir til Evrópu. Það er hið samevrópska sjúkratryggingakort. Það er kort sem enginn á leið um Evrópu ætti að vera án alveg burtséð frá öllum öðrum tryggingum.

Þetta ókeypis kort, sem tekur heila viku að fá í hendurnar, tryggir þér þjónustu hjá opinberum sjúkrastofnunum alls staðar í álfunni ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki.

Hversu mikilvægt er það gott fólk, að geta framvísað einu korti ef slys bjátar á erlendis og fengið þá þjónustu sem þörf er á? Ólíkt skárra að framvísa velþekktu kortinu en að reyna að útskýra fyrir rúmenskri eða ítalskri hjúkrunarkonu að þú eigir rétt á þjónustunni. Kannski þvælast deilda á milli þar sem enginn veit hvort þú átt rétt á einhverju eða ekki eða fá mun lélegri þjónustu en þú átt rétt á sökum þess að enginn skilur orð af því sem þú segir?

Nei. Langbesta kortið til að hafa með sér til Evrópu er evrópskt sjúkratryggingakort og hananú.