Margir draga þá ályktun að ferðast beri með hvað mestri aðgát í lítt þekktari löndum Evrópu. Albanía kemur upp í hugann og Ungverjaland þykir mörgum vafasamt svo og Rúmenía. En sé mið tekið af breskum ferðamönnum eru túristar féflettir hvað mest á Spáni og í Frakklandi.

Rúmlega tíu prósent Breta urðu fórnarlömb svindls af einhverju taginu í Frakklandi.
Vefmiðillinn Money.co.uk framkvæmdi úttekt á því meðal þúsunda breskra ferðamanna hvar þeir hefðu helst lent í svindli eða peningaplokki umfram það sem gerist svona almennt. Spánn þar í algjörum sérflokki, Frakkland þar á eftir og svo Ítalía. Ekkert svokallaðra „vafasamra“ landa komst einu sinni á blað.
Svindlið og svínaríið sem ferðalangar nefndu fyrst og fremst snérist um vasaþjófnað, fjölmargir lentu í því að hótel- og gistihúsaeigendur heimtuðu sérstakt aukagjald við komu eða þegar tékkað var út, vafasamar aukagreiðslur komu til vegna bílaleigubíla og auðvitað leigubílstjórar sem fóru alltaf lengstu mögulegu leið og jafnvel með mælinn á næturtaxta.
Rúmlega 21 prósent aðspurðra sögðust hafa orðið fyrir svindli eða plokki á ferð um Spán. Það er ótrúleg tala þegar haft er í huga að fleiri milljónir Breta sækja Spán heim hvert einasta ár. Í Frakklandi sögðu rúm fjórtán prósent farir sínar ekki sléttar og á Ítalíu höfðu rúm tíu prósent orðið fyrir fjárhagstjóni vegna svindls af einhverju taginu.
Án þess að leggja Íslendinga að jöfnu við Breta, enda við mikið sniðugara fólk :), þá má líklega yfirfæra reynslu þeirra yfir á norðanfólk hér á hjara veraldar. Það er, þrátt fyrir allt, mjög auðvelt að plata okkur.







