Sennilega flestir búnir að gleyma heldur kjánalegu partíi sem haldið var með merkilegu pompi og prakt í einum sal Hörpunnar í nóvember síðastliðnum. Það kynntu nokkrir sleðar til sögunnar nýtt íslenskt flugfélag. Flugfélag sem ekki hefur heyrst svo mikið sem múkk af síðan.

Það eina sem vitað er með vissu um flugfélagið Play er lógóið. Allt annað á huldu þrátt fyrir húrrahróp og djammerí.

Jamms. Kjánalegt með afbrigðum að halda upp á stofnun nýs flugfélags með góðu partíi þó ekki virðist hafa verið króna í kassanum á þeim tíma og allar fréttir fram að kórónapakkanum bentu til þess að engir fjárfestar treystu þessum sniðugu fyrrum stjórnendum Wow Air fyrir svo miklu sem einni evru.

Seint koma sumir en koma þó segir máltækið og þrátt fyrir almennan sleða- og fíflahátt hafa stjórnendur Play líklega heldur betur hitt nagla á haus. Flugfélagið hefði nefninlega farið á hausinn á algjörum heimsmetstíma ef áætlanir hefðu staðist og flug hafist í febrúar. Play væri nefninlega þegar komið á spjöld Guinness fyrir hraðasta gjaldþrot sem sögur fara af ef allt hefði staðist sem menn sögðu.

Alas, ekki allt svo með öllu illt.

Ef það er raunverulega rétt hjá stjórnendum Play að fjármagn til reksturs hafi verið á lokametrum í janúar síðastliðnum þá er það fjármagn mögulega ennþá í handraðanum. Sé það reyndin er Play er þvílíkri kjörstöðu að engu tali tekur. Eða hvaða flugfélag er 100% tilbúið í slaginn þegar takmörkunum vegna kórónafaraldursins verður loks aflétt?

Sannarlega ekkert þessara gömlu, góðu. Nánast öll flugfélög heims eru nú í lamasessi, mörg þau verst stöddu munu ekki lifa  af og jafnvel þau best reknu munu ekki geta sett bensíngjöfina í botn þegar þar að kemur. Það tekur vikur að klárgera rellur fyrir flug á ný eftir geymslu, starfsfólk þarf að hreinsa af sér ryðið og það búið að segja upp svo mörgum að vikur tekur líka að koma þokkalegri starfsemi í samt horf. Svo ekkert sé minnst á að þotueldsneyti fæst næstum gefins á sama tíma og velflest flugfélög eru með eldsneytisvarnir og greiða töluvert meira fyrir en þau þurfa.

Þó ekki fyrir Play. Þeir „sniðugu” gaurar sem þar ráða ríkjum gætu náð æðislegu starti ef Play setur rellur í loft fimm mínútum eftir að faraldurinn er afstaðinn. Þá ekki bara Ísland og Íslendingar sem gætu notið góðs af heldur og milljónir annarra þarna úti sem hafa setið brúnaþungir í dimmum herbergjum í sóttkví. Því þó efast megi um að allir ferðaþyrstir þarna úti séu spenntir fyrir ferðalögum þegar kóróna hefur sungið sitt síðasta leikur enginn vafi á að fjöldi fólks getur ekki heilt á sér tekið án þess að komast til Alicante, Bangkok, Frankfurt, New Orleans eða Nuuk. Og það ekki síðar en strax.

Play þannig mögulega í ótrúlegri kjörstöðu. Nema auðvitað að þeir fjárfestar sem lofuðu peningum á plóg séu orðnir blankir í dag.