Stjórnvöld á Spáni gera nú hálfpartinn ráð fyrir að loka landinu fyrir öllum túrisma í ALLT SUMAR. Það er planið ef ekki tekst að ná feitum tökum á kórónafaraldrinum á allra næstu vikum.

Ef ekki næst að takmarka kórónafaraldurinn á Spáni á allra næstu dögum gæti landið verið alfarið lokað öllum ferðamönnum í allt sumar.
Spænska dagblaðið ABC greinir frá því að spænsk stjórnvöld sitji nú sveitt yfir hvernig hægt sé að opna landið að nýju án þess þó að setja enn fleiri landsmenn í hættu vegna kórónafaraldursins. Ein sviðsmyndin tekur mið af því hvað skynsamlegt sé að gera ef ekki næst að hefta kórónafaraldurinn á allra næstu dögum og vikum. Þá telja spænskir ráð að loka pleisinu fram á haustið.
Faraldurinn leikið Spánverja grátt undanfarnar vikur. Tæplega 170 þúsund þegnar sýktir þegar þetta er skrifað plús tæplega sautján þúsund dauðsföll. Spánn er verst leikna land heims ef Bandaríkin eru frá talin. Munurinn þó sá að á Spáni er fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu en vestanhafs er öll slík þjónusta þriðja heims (nema þú eigir fúlgur fjár.)
Spánverjinn í slæmum málum því ferðaiðnaðurinn er afar stór hluti landsframleiðslunnar. Átján prósent vinnuafls í landinu starfar með einum eða öðrum hætti við ferðaþjónustu. Að henda heilu sumri á háannatíma er hreint ekkert grín.
Að sama skapi er spænsk ferðaþjónusta í slæmum málum ef þeir hleypa inn milljónum ferðafólks áður en hægt er að ná tökum á kórónafaraldrinum (ef það er á annað borð hægt.) Ef landið er opnað fyrir bisness og ferðafólk fer að sýkjast í kjölfarið gæti Spánn sem ferðamannaland hlotið varanlegan skaða.
Töff pakki fyrir þá 30 þúsund Íslendinga sem eiga eignir á Spáni sem og milljónir annarra hvers toppurinn á tilverunni ár hvert er dvöl undir spænskri sól. Á móti kemur þó að sumrin á farsæla Fróni eru yfirleitt stórkostleg 🙂







