Makalaust hvað einn nettur vírus getur gert. Sá fær opinbera utanríkisþjónustu Íslands til að auglýsa fyrir einkafyrirtæki vikum og mögulega mánuðum saman.

Ekki aðeins er utanríkisráðuneytið að vinna fyrir Icelandair heldur RÚV líka. Skjáskot

Spekingar segja að allt sé falt og miðað við utanríkisráðuneyti landsins, rekið af skattfé almennings, eru það kannski orð að sönnu. Ráðuneytið hefur ekki birt staf undanfarnar vikur á samfélagsmiðlum öðruvísi en að koma á framfæri flugupplýsingum einkafyrirtækisins Icelandair.

Nú má einhver sjálfstæðisplebbinn gjarnan leiðrétta okkur hér. Er það ekki sjálfstæðisflokkurinn sem hefur árum saman barist fyrir því að ríkið pakki saman í einu og öllu og láti markaðinn og hina leyndu hönd hans græja allt og allt?

Nú kemur allt í einu í ljós að hvert einkafyrirtækið á fætur öðru getur ekki kveikt á einni peru án þess að fá aðstoð frá ríkinu. Þar fremst í flokki Icelandair sem eyddi bara rúmum tveimur milljörðum króna í kaup á eigin bréfum fyrir ekki svo löngu síðan. Það tveir milljarðar sem gætu hafa komið í veg fyrir að 240 manns misstu vinnuna hjá fyrirtækinu hér fyrir skömmu síðan.

Ágætt að vita að hægt sé að kaupa þjónustu utanríkisráðuneytisins. Fararheill gæti sannarlega notað þá þjónustu sem og mörg önnur smærri fyrirtæki landsins. Spurning bara hvað það kostar. Þarf að senda ráðherranum kassa af góðu víni eða nægir að vera í rétta flokknum? Svar óskast.

PS: ekki koma með þvælu um að utanríkisráðuneytið þurfi að aðstoða Íslendinga á erlendri grundu. Það er enginn Íslendingur erlendis með bæði gigt í puttum og alzheimer á kantinum sem þarf að heimsækja vef utanríkisráðuneytisins til að skoða flugáætlun Icelandair.