Undir venjulegum kringumstæðum mætti ætla að fara þyrfti langleiðina til Miðjarðarhafsins og jafnvel lengra til að komast í 30 gráðu hita í byrjun október. Íslendingum nægði þó að fara til Cambridge í Englandi á föstudaginn var þar sem hundrað ára gamalt hitamet var slegið þegar hitastig þar mældist 29,2 gráður.
Og þannig var nánast öll nýliðin helgi í suðurhluta Bretlands þar sem hitastig mældist hátt yfir því sem venjulegt er en hitastig í Cambridge um þennan árstíma er nær því að vera milli 16 og 18 gráður.
Þá er sama upp á teningum á Spáni þar sem hitastig er verulega umfram það sem hefðbundið er. Í norðurhluta Spánar fer meðalhitastig í septemberlok alla jafna ekki yfir 19 gráður en alla síðustu viku sýndu mælar frá 23 til 28 gráðum í Bilbao, San Sebastian og Pamplóna.
Finnst mörgum nóg um að fá sumarhita í lok september og byrjun október og fátt annað í kortunum en áframhaldandi hitar.
Enn sunnar í landinu í Cordóba og Sevilla er hitastigið enn daglega vel yfir 30 gráðum sem er með því mesta sem sést hefur á þeim slóðum.






