Auðveldara verður það með hverjum deginum að þvælast erlendis sökum þess magns upplýsinga sem fá má gegnum netið áður en haldið er af stað. Gildir nánast einu hvað krummaskuð eða heimsklassaborg um er að ræða; alls staðar má fá nákvæmar upplýsingar og aðstoð um allt og allt á skömmum tíma.
Google er aftur farið að reyna sig í ferðaþjónustu á borgarvef sínum, Google City Tour, en með aðstoð þess vefs nægir notendum að slá inn heiti borgar til að fá kort og ráðleggingar um hvert skal halda á sem skemmstum tíma og hvaða leið skuli labba í þokkabót. Enn betra er að þekkja heimilisfang hótelsins sem gist er á. Með það að vopni getur Google gefið þér leiðbeiningar frá þeim stað og nánast hvert sem er innan borgarmarkanna.
Reyndar fullmikil leiðindi kannski að láta Google ákvarða hvert einasta skref í erlendri stórborg en sé tími af skornum skammti og peningar líka er handhægt og ódýrt að prenta út eða fá sendar slíkar upplýsingar í farsíma.
Google City Tours hér.






