Tíðindi

Stóru flugfélögin standa sig illa

  29/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Stóru bandarísku flugfélögin fá á baukinn í viðamikilli úttekt Neytendasamtakanna þar í landi. Fá þar átta af tíu stærstu flugfélögunum lága einkunn fyrir þægindi og þjónustu.

Er könnun þessi birt í nýjasta hefti Consumer Reports þar vestra en fimmtán þúsund ferðamenn tóku þátt í henni. Voru flugfélögin metin eftir ýmsum þáttum; þjónustu um borð og við innritun, þrifnað um borð, sætaþægindi og afþreyingu svo fátt sé talið.

Í ljós kemur að þægindin þykja ekki par merkileg meðal stóru flugfélaganna American Airline, US Airways, Delta og Continental. Sætin þykja almenn óþægilega þröng og þá þykir þjónusta um borð minna en góð.

Aðeins tvö flugfélög koma vel út úr könnun CR. Það eru JetBlue og Southwest sem einmitt eru þekkt fyrir óvenju góða þjónustu þó bæði eigi að heita lágfargjaldaflugfélög. Til að mynda er sætisrými mun meira hjá JetBlue en hjá þeim stóru þótt verðlagning þeirra stóru sé almennt mun dýrari. US Airways lenti í neðsta sætinu sem gæti fyrirgefist nema fyrir þá staðreynd að sama flugfélag þótti einnig lakast í sams konar könnun CR árið 2007.

Athyglisvert er að 40 prósent þátttakenda segjast almennt fljúga minna en áður sökum ýmissa aukagjalda sem flugfélögin troða ofan á verð sín. Er þar verið að vísa til aukagjalda fyrir töskur, aukagjalda fyrir að greiða með kreditkorti auk annarra gjalda sem erfitt er fyrir ferðalanga að átta sig á.