Fimmtudagurinn 2. júní er stór dagur á Keflavíkurflugvelli því þá lendir fyrsta sinni vél frá bandaríska flugfélaginu Delta hér í reglulegu áætlunarflugi. Tilkoma þeirra eykur tímabundið samkeppni og gefur hinum venjulega Frónbúa í ferðahug fleiri möguleika.
Tilkoma Delta hefur þegar haft nokkur áhrif því Icelandair brást við fregnum um áætlunarflug Delta hingað til lands með samningi við JetBlue flugfélagið í Bandaríkjunum. Getur Icelandair þannig boðið langflesta áfangastaði innan Bandaríkjanna eins og Delta.
Að sama skapi hefur Iceland Express einnig aukið ferðaúrval sitt innan Bandaríkjanna en á þó ekki í neinu samstarfi.
Stikkprufur* ritstjórnar Fararheill.is sýna að Delta er að skila bestum verðum seinnipart sumars meðan Icelandair og Iceland Express bjóða mun betur ef fljúga þarf fljótlega.
Dæmi 1
Delta Keflavík – New York og tilbaka 10. til 23. júní á almennu farrými: 159.370 krónur.
Icelandair Keflavík – New York og tilbaka 10. til 23. júní á almennu farrými: 107.220 krónur.
Iceland Express Keflavík – New York og tilbaka 10. til 23. júní á almennu farrými: 78.420 krónur.
Dæmi 2
Delta Keflavík – New York og tilbaka 4. til 24. ágúst á almennu farrými: 56.770 krónur.
Icelandair Keflavík – New York og tilbaka 4. til 24. ágúst á almennu farrými: 96.410 krónur.
Iceland Express Keflavík – New York og tilbaka 4. til 24. ágúst á almennu farrými: 87.150 krónur.
Dæmi 3
Delta Keflavík – New York og tilbaka 7. til 10. júlí á almennu farrými: 56.770 krónur.
Icelandair Keflavík – New York og tilbaka 7. til 10. júlí á almennu farrými: 108.600 krónur.
Iceland Express Keflavík – New York og tilbaka 7. til 10. júlí á almennu farrými: 94.760 krónur.
* Ekki var gerður greinarmunur á tegundum almenningsfarrýma sem eru nokkur hjá Icelandair og Delta heldur aðeins borin saman verð á flugi fram og til baka umrædda daga væri pantað 1. júní.






