Það er ekkert öðruvísi. Dagblað allra landsmanna með „stórfrétt” á forsíðu þennan daginn. Erlendir ferðamenn farnir að kaupa í matinn í næstu verslun. Þvílíkt skúbb!
Döööh, ekki skúbb.
Bæði Rannsóknarsetur verslunarinnar og Fréttablaðið aðeins TVEIMUR ÁRUM á eftir okkur hér með grein um að ferðafólk strunsi nú hjá veitingastöðum landsins og útbúi mat sinn á hótelum, í tjöldum eða þar sem því verður komið við.
Burtséð frá bólugröfnum „fréttamönnum” Fréttablaðsins, er einhver virkilega hissa á að ferðafólk leiti annað en á veitingastaði reglulega til að fá í svanginn? Við öll hér forðumst flest íslensk veitingahús eins og pestina enda er græðgi þar öllu öðru yfirsterkari. Hvers vegna ættu útlendingar eitthvað frekar að láta sig hafa sjúklegt okur hægri vinstri?
Beisik stöff…







