Líf margra er innantómt og ástin sjaldan eða aldrei á sjóndeildarhringnum. Þá er óvitlaust að reyna óhefðbundnar leiðir og tilraun með eina slíka gekk framar vonum fyrir skömmu.

Sérstakt stefnumótaflug flugfélagsins Jet2 tókst framar vonum og hyggjast menn endurtaka leikinn á nýju ári

Sérstakt stefnumótaflug flugfélagsins Jet2 tókst framar vonum og hyggjast menn endurtaka leikinn á nýju ári

Þá bauð breska lággjaldaflugfélagið Jet2 upp á sérstaka stefnumótaferð til Parísar og var árangurinn slíkur að flugfélagið hyggst bjóða fleiri slíkar ferðir í framtíðinni.

Í boði var flug til Parísar í vél sem sérstaklega hafði verið gerð rómantísk eins og hægt var og eingöngu ókvæntir og makalausir einstaklingar sem gátu keypt miða. Dauf ljós, kampavín og rómantísk tónlist á leiðinni og þess gætt að kynjahlutfallið væri rétt svo enginn yrði útundan. Eftir flugtak hófst svo hraðstefnumót um borð, svokallað speed-dating, þar sem fólk skipti um sæti og spjallaði við hina og þessa í nokkrar mínútur í senn.

Við komuna til Parísar var hópnum svo skutlað þráðbeint um borð í lúxusferju á Signu þar sem annað hraðstefnumót fór fram og síðar fór hópurinn á rómantískan veitingastað áður en haldið var út á lífið.

Hvað sem fólki kann að finnast um þetta fyrirkomulag tókst framtakið svo vel að Jet2 hyggst bjóða upp á slíkar ferðir aftur á nýju ári. Í öllu falli töluvert betri leið til að stytta flugið en þetta hefðbundna ;).