Fasistinn og fávitinn Donald Trump gerir það ekki endasleppt. Fregnir herma að frá og með þessari viku verði Íslendingum sem og öðrum þeim er fljúga frá Evrópu til Bandaríkjanna bannað að hafa tölvur af nokkru taginu með í farþegarými.

Lok, lok og læs og allt í stáli fyrir alla þá sem vilja vinna á leiðinni til Bandaríkjanna.

Slíkt bann hefur verið um skeið á alla farþega flestra flugfélaga sem fljúga beint til Bandaríkjanna frá Mið-Austurlöndum. Undantekningin er hið dásamlega gyðingaríki Ísrael sem nýtur velvildar Bandaríkjamanna út yfir gröf og dauða.

Slíkt bann hefur þótt líklegt um tíma gagnvart öðrum en múslimum og nú er fullyrt á bandaríska vefmiðlinum Daily Beast að í vikunni verði tilkynnt að tölvur í farþegarými verði bannaðar öllum þeim er á leið eru vestur um haf til Bandaríkjanna.

Afar miður ef rétt reynist. Ekki aðeins vegna þess að þúsundir farþega reiða sig á far- og spjaldtölvur í flugi til að stytta stundirnar og þar ekki síst barnafólk. Ekki aðeins vegna þess að fólk í viðskiptaerindum notar gjarnan flugtíma til að vinna á tölvu um borð. Né heldur aðeins vegna þess að nú geta hinir og þessir ókunnir aðilar dúllað sér í tölvum flugfarþega án þess að nokkur viti neitt fyrir og eftir flug.

Ástæða bannsins er sú að auðvelt sé að smygla sprengju um borð í tölvum en þau rök eru haldlaus og heimskuleg því óprúttnir geta næsta auðveldlega notað snjallsíma til að gera sprengju virka sem geymd er í far- eða spjaldtölvu í innrituðum farangri undir fótum farþega. Væri raunverulega um öryggisaðgerð að ræða yrði öllum bannað að fljúga með tölvu meðferðis til Bandaríkjanna hvort sem er í farþegarými eða í innrituðum farangri.

Með tilliti til að allmargir nota tölvur um borð til vinnu eða afþreyingar má ljóst vera að pirringur flugfarþega vestur um haf mun aukast til muna. Aðilar eins og Wow Air bjóða alls ekki upp á afþreyingu af neinum toga í sex til tíu tíma flugi þangað og þó afþreying finnist í flestum vélum Icelandair þá eru bíómyndirnar í boði ekki alveg það ferskasta í bransanum.

Þetta í ofanálag við þröng sætin og þjónustu sem á skylt við Bónus er ávísun á tóm leiðindi í tólf tíma til og frá Bandaríkjunum ef rétt reynist.

Kannski bara fínt að gefa Bandaríkjum Trump frí svona næstu fjögur árin að minnsta kosti 😉