Einhvern tímann séð hvíta höfrunga? Tuttugu risaskötur á einum og sama staðnum? Hvalhákarla og drápshvali fyrir utan þrjú þúsund aðrar tegundir sjávardýra?

Heilu rúturnar af fólki geta notið sjávarlífsins í nærmynd á safninu Chimelong í Kína. Mynd Chimelong

Heilu rúturnar af fólki geta notið sjávarlífsins í nærmynd á safninu Chimelong í Kína. Mynd Chimelong

Líklega ekki enda ekkert sædýrasafn í veröldinni sem boðið hefur upp á allt þetta á einum og sama staðnum. Fyrr en nú. Engum skal koma á óvart að þar er um kínverskt sædýrasafn að ræða og það safn strax við opnun komið með ein fimm heimsmet samkvæmt heimsmetabók Guinness. Það er stærst og mest og með mestan fjölda dýra fyrir utan að hér er stærsti glerveggur heims.

Hér er um að ræða Chimelong sædýrasafnið sem er aðeins einn hluti Chimelong ævintýragarðsins sem þekur stóra landspildu á eynni Hengquin í Kína og tekið hefur þrjú ár að byggja. Garðurinn þykir svo magnaður að sumir hafa sett samasemmerki við kvikmyndina um Júragarðinn. Ekki svo að skilja að hér séu risaeðlur en svæðið er afar víðfeðmt, skógi vaxið og hér fjölmörg dýr að leik sem að hluta til eru frjáls.

Þá á enn eftir að minnast á risavaxinn vatnsleikjagarðinn og skemmtigarðinn og magnað lúxushótelið og svo framvegis og svo framvegis.

chime4
Chime2