Þau skipta hundruðum hótelin sem standa meðfram strandlengju Yucatan í Mexíkó og ekki að ósekju enda svæðið yndislegt með stóru Y.

Dreams Tulum hótelið í Mexíkó gerir sérstaklega út á hjón og pör og rómantísk stemmning meiri fyrir vikið.

Dreams Tulum hótelið í Mexíkó gerir sérstaklega út á hjón og pör og rómantísk stemmning meiri fyrir vikið.

En meirihluti þessara hótela gera út á yngra fólkið; djamm og djús út í eitt meðan færri reyna að trekkja þau okkar sem rómantískari eru.

Dreams Tulum er þó eitt þeirra síðarnefndu og fær ágæta dóma hjá notendum samkvæmt vefmiðlum.

Þangað er nú í boði að fara frá Bretlandi í september í tvær vikur með öllu inniföldu, öllum ferðum, 200 dollara inneign og uppfærslu í svítu fyrir aðeins 245 þúsund krónur á mann.

Hreint ekki gefið en töluvert lægra verð en fólk á að venjast til tyllistaða í Mexíkó. Hótelið stendur nánast í flæðarmálinu og ef heitur sjórinn lokkar fólk ekki eru ljúfir pottar og fallegar sundlaugar hér líka.

Dvöl hér gæti líka heillað fólk með ævintýri í blóðinu því hótelið er staðsett ekki svo fjarri landamærum Mexíkó og Belíz. Ekki neitt amalegt við að skreppa þangað dag eða tvo ef svo ber undir.

Þetta tilboð er í boði af hálfu Caribbean Warehouse sem fékk verðlaun í Bretlandi í fyrra sem ein besta ferðaskrifstofa landsins. Allt um tilboðið hér.