Hið íslenska Icelandair er 73. besta flugfélag heims samkvæmt árslista hins virta Skytrax sem sérhæfir sig í mælingum á þjónustu og aðbúnaði flugfélaga og flugvalla heimsins.

Icelandair upp á við í þjónustukönnunum á síðasta ári.

Icelandair upp á við í þjónustukönnunum á síðasta ári.

Þetta er niðurstaða World Airline Awards sem kynnt voru formlega í síðustu viku en flugfélagið íslenska hækkar sig aðeins frá árinu 2012 þegar það var 88. besta flugfélag heims.

Könnun Skytrax er viðamesta þjónustukönnun meðal flugfarþega í heiminum og tekur tillit til 40 þátta í þjónustu og aðbúnaði hjá hverju flugfélagi fyrir sig.

Besta flugfélagið á síðasta ári reyndist vera Emirates en þar á eftir komu Qatar Airways og Singapore Airlines. Langbesta lággjaldaflugfélagið er sem fyrr Air Asia en þar á eftir er Norwegian og skammt þar undan easyJet.

Listinn hér í heild sinni.