Það er ekki súpergaman alls staðar á Spáni. Allar strendur landsins eru ekki fyrsta flokks og sums staðar eru glæpir algengari en aðrir. Stundum eru smábæirnir ekki síður merkilegir en stórborgirnar og verðlag borga á milli getur verið afar misjafnt.

Vegvísum Fararheill.is fjölgar hægt og sígandi og það gildir um Spán eins og önnur lönd heimsins. Nú höfum við kortlagt eina 30 mismunandi borgir og bæi Spánar þér til upplýsingar og þar drögum við ekki fjöður yfir gallana eins og fjölmargar ferðahandbækur jafnan gera svo ekki sé minnst á auglýsingar ferðaskrifstofanna sem ætíð lýsa Spáni sem draumi líkast.

Hér fyrir neðan er kort allra staða sem ritstjórn hefur fjallað um á Spáni hingað til en þeim fjölgar reglulega og nýjustu upplýsingar uppfærðar af og til svo verðlagning og annað slíkt sem breytingum tekur séu jafnan í ferskasta kantinum.

Njóttu!


View Spánn í boði Fararheill.is in a larger map