Aðeins 29 prósent allra brottferða Icelandair frá London til Keflavíkur fyrstu tvo mánuði ársins voru á réttum tíma. Sömuleiðis er stundvísi félagsins ábótavant frá Kaupmannahöfn yfir sama tíma en þaðan fara vélar flugfélagsins aðeins í loftið á réttum tíma í 40 prósent tilvika.

Skjótt skipast veður og sérstaklega í lofti. Iceland Express er nú mun stundvísara flugfélag en Icelandair
Á sama tíma og Icelandair virðist ekki ganga að bæta stundvísi sína almennt er hið nýja tékkneska flugfélag CSA Holidays, sem flýgur fyrir Iceland Express, að stórbæta stundvísi þess ferðasala frá því sem áður var.
Þegar flogið var með Astreus var það viðburður að Iceland Express væri á réttum tíma en með tilkomu nýs flugaðila er það nú Iceland Express sem hefur vinninginn gagnvart Icelandair. Er það í takti við sögu CSA Holidays sem hefur alla tíð verið meðal stundvísustu flugfélaga Evrópu.
Eins og sjá má á tölum Flightstats hér að neðan eru stundvísitölur Icelandair fyrstu tvo mánuði árins ekki upp á marga fiska. Meðaltöfin milli London og Keflavíkur reyndist vera 35 mínútur og mest rúmir tveir tímar eða 142 mínútur. Árangurinn frá Kaupmannahöfn og hingað heim er líka aðeins 40 prósent eins og hann á að vera. Þar er meðaltöfin 28 mínútur og lengsta töf hingað til tæpar fjórar klukkustundir.
Virðist Icelandair reyndar ganga illa að vita hverjum klukkan glymur nema þegar flogið er heim frá Boston eða Seattle. Eru það einu staðirnir fyrstu 60 daga ársins þar sem stundvísi félagsins er innan eðlilegra tafmarka sem eru 15 mínútur.








